Worldwide

Iceland Heim

– miðstöð Brahma Kumaris á Íslandi

Lótushús er íslenska miðstöð samtakanna Brahma Kumaris World Spiritual University sem stofnuð voru á Indlandi 1936. Samtökin reka nú þúsundir miðstöðva í yfir 100 löndum víðsvegar um heiminn og þekkingin sem þar er boðið upp á nýtist fólki óháð kynstofni og trúarbrögðum. Auk þess að bjóða upp á námskeið í hugleiðslu og hugrækt hefur Brahma Kumaris staðið fyrir ýmsum samfélagslegum verkefnum, m.a. í heilbrigðis-, fangelsis- og menntamálum, og eru samtökin ein af ráðgjafarstofnunum Sameinuðu þjóðanna. Brahma Kumaris gengur út frá því, að viljum við stuðla að friðsælli heimi, verðum við fyrst að hlúa að okkar eigin innri friði. Öll námskeið sem haldin eru á vegum skólans eru þátttakendum að kostnaðarlausu og er kostnaði mætt með frjálsum framlögum þeirra sem góðs hafa notið af starfsemi skólans.

Starfsemin í Lótushúsi hófst árið 1999 en Lótushús er staðsett á einstökum stað við Kópavogshöfn þar sem bílastæði eru næg og fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni. Lótushús sækir nafn sitt til lótusblómsins sem hefur ræturnar í moldinni en flýtur sjálft fyrir ofan, tandurhreint og ómengað af ytri áhrifum. Lótushús er þannig staðsett í iðnaðarhverfi á Kársnesinu í Kópavogi en innan veggja þess eru kjöraðstæður til að upplifa og byggja upp innri frið og jafnvægi. Hugleiðslu- og hugræktarnámskeið eru haldin í Lótushúsi með reglulegu millibili allan ársins hring og upplýsingar um námskeiðin auk annarra viðburða má finna hér.