Mikilvægasta ferðalagið sem þú getur lagt upp í er ferðalagið inn á við. Þetta er ferðalagið að sannleikanum um það hver þú raunverulega ert. Á þessum stað, rétt handan við hversdagslegu vitundina, geturðu safnað andlegum styrk. Andlegur kraftur veitir þér styrkinn til að kjósa skapandi hugsun í stað ósjálfráðrar, friðsæla svörun í stað neikvæðs viðbragðs, frið, kærleika og samhljóm í stað streitu, rifrildis og ringulreiðar.
Hugleiðsla hjálpar þér að hefja þetta innra ferðalag. Raja Yoga hugleiðsla veitir þér skýran andlegan skilning á eigin sjálfi og hjálpar þér að enduruppgötva og virkja þá jákvæðu eiginleika sem eru nú þegar til staðar innra með þér. Hugleiðslan gerir þér kleift að auka styrk þinn og skapa ný viðhorf og lífsmáta.
Þú rifjar upp þann sannleika um eigið sjálf sem þú þekktir áður en hafðir gleymt í langan tíma. Þú byrjar að njóta stunda í innri þögn og gefur þér tíma til sjálfskoðunar og íhugunar.
Hugleiðsla hjálpar þér einnig að aftengja þig frá niðurbrjótandi hugsanamynstrum, tilfinningum og viðbrögðum. Afleiðingin er sú að þú getur meðvitað skapað jákvæða orku sem bætir viðhorf þín, gjörðir og samskipti við aðra.
Ferlið hefst þegar þú beinir athyglinni inn á við, aftengir þig frá skaðlegum ávönum, tengist innri andlegri uppsprettu þinni og tengist síðan ytra umhverfi aftur. Þetta hefur varanleg styrkjandi áhrif.
Hugleiðsla er kennd sem aðferð til að lyfta sjálfsvitundinni upp á hærra plan og öðlast þar með dýpri skilning á eigin sjálfi. Hugleiðslan kyrrir hugann og styrkir vitsmunina svo hægt sé að fá innsýn og skilning á þeim andlegu lögmálum sem viðhalda jafnvægi og samhljómi og geta leitt til endurnýjunar alls lífs á jörðinni.
Raja Yoga hugleiðsla
„Hugleiðsla sem beitt er á réttan hátt veitir öllum aðgang að Guði.”-Sr. Jayanti, God´s Healing Power (Heilandi máttur Guðs), (Michael Joseph, Penguin Group, 2002)
Raja Yoga hugleiðsla skilgreinir sjálfið sem sál og gerir okkur kleift að mynda beina tengingu og samband við hina æðstu uppsprettu hreinnar orku og hæstrar vitundar. „Raja Yoga” mætti þýða sem „hin æðsta eining”, eða „hin æðsta tenging”. Allar sálir eiga rétt á að upplifa þetta æðsta samband.
Hugleiðsluupplifun
Líkt og önnur færni, krefst hugleiðsla iðkunar eigi góður árangur að nást. Sífellt fleiri gera einhvers konar hugleiðslu að daglegum lið í lífi sínu og nýta hana sem kröftugt mótefni gegn streitu eða sem einfalda slökunaraðferð. Með því að hugleiða stutta stund á hverjum degi verður hugleiðslan fljótt að eðlilegri og auðveldri venju sem launar margfalt til baka alla viðleitni þína Upplifðu hugleiðslu.



